Auglýsing

Könnun

Burt með ríkisstjórnina ?

- Heitt á fóninum -

Beyone - If i were a boy

Mase - Tell me what u want

Bob marley - Stir it up

Beyonce - Postcard

Tiki Taane - Allways on my mind

Fat freddys drop - wandering eye

Tracy Chapman - crossroads

The Roots - Dont say nuthin

Chris Brown - Oh baby

Og fleira... allt milli himins og jarðar.

Leit

Leikur dagsins

Komið að því..

21. nóvember 2008 klukkan 14:38
Ætla að henda inn smá bloggi þennan ágæta föstudag. Aðalega til að grobba mig af því að ég hef semsagt fengið þau gleðitíðindi að ég fékk vinnu í Nýja Sjálandi og fer af landi brott í byrjun des. Er samt ekki kominn með atvinnuleyfi sem stendur, geng frá því úti. Þarf að fá undirskrift hjá fyrirtækinu og svoddan. Þetta er algjört hell að sækja um þetta, er t.d. að fara í læknisskoðun á mánudaginn og kosnaðurinn við hana er 20.000 kr isl. Klikkun!! Þá sérstaklega í þessu kreppu ástandi, en þíðir svoesm ekki að væla yfir því.
Hef ekki ákveð hversu lengi ég verð, en reikna fastlega með hálfu ári ef ekki lengur. Allavega ekki styttra en það. Hlakka til að fara sem og kvíði fyrir, langt ferðalag. Svo á ég eftir að sakna fjölskyldu, vina og kunningja og íslands í heild sinni þrátt fyrir að við séum að standa í kreppu. Stolt að vera íslendingur og mun alltaf vera.
FULL trú á að þetta leysis á einhverja vegu, getur ekki annað verið. Mestu máli skiptir að standa saman á þessum erfiðu tímum. 
öðru..helginni ? Hvað á maður að gera af sér, seinasta helgi var ekki upp á marga fiskana hjá mér. Fór varla út úr húsi. Bara heima að dúllast e-ð, en það er nauðsynlegt líka. En væri til í að gera e-ð þessa helgi, njóta þessara seinustu daga á Íslandi.. í bili. 
Ég ætla að taka með mér myndavél út núna, klikkaði alveg á því seinast. En Linda, stelpa sem var með mér úti þá tók myndir á bara alltaf eftir að fá þær hjá henni. 
En nuna ætla ég að taka alveg fullt af myndum handa ykkur heima á íslandi.. lofa því!
ANYWAY.. komið gott. Held samt að Sif frænka sé eina sem skoðar þessa síðu af einhverju leyti. Takk fyrir það Sif mín, gott að vita af e-m..
Hafið það gott um helgina gott fólk!
Luv And Kisses
Inga Ó. Guðmunds 

Drulla upp á bak !

15. nóvember 2008 klukkan 16:48
Góðan daginn.. Þessi síða er búinn að vera rétt eins og ríkisstjórnin í landinu. Eigum lítið annað sameiginlegt en það. Ég er svo "Lost" að oft gleymi ég hreinlega að ég sé með bloggsíðu. Þá er mikið sagt, takk fyrir. Held að það séu samt sem áður ekki margir sem eru að skoða þetta hjá manni, en væru kannski duglegri að kíkja við ef maður væri að bulla og setja inn myndir og svona. 

Anyway

Ég hef verið að vinna undanfarið like maniac í orðsins fyrstu merkingu. 5 sláturverktíð mín að enda. Þetta var ágætis verktíð, þrátt fyrir að menn voru ekki sáttir við launin. En sem betur fer leystist það á enda og allir fóru þreyttir til síns heima á ný. Blóð sviti og tár, en þó aðllega blóð. Þar sem þetta er nú einu sinni sláturhús.

Nú fer að koma að því að ég fari svo af landi brott ef allt gengur eftir. Er búinn að vera að vinna í því að fá atvinnuleyfi á Nýja Sjálandi, kominn með pappírana í hendur eftir mikið puð. Þá kemur í ljós að ég geti ekki sótt um fyrr en ég kem til Nýja Sjálands, því við erum ekki eitt af þessum þriðja ríkis löndum. Veit svosem ekki hvernig staðan er á því í dag, eftir að Ísland fór á hausinn. En held að það sé óbreytt staða. Fæ lokasvar um vinnu í nærstu viku þá fer þetta alltsaman að skírast. Keep my fingers crossed. Það er semsagt eins og ég hef minnst á hérna áður eitt af stærstu sláturhúsum í heimi og verður mikil viðurkenning fyrir mig að fá að upplifa það að vinna fyrir þá og sanna mig.  
Markmið mitt með því að byrja að skrifa hér að nýju er einmitt sá að fólkið heima getur haft þann kost að fylgjast með mér á nýjum slóðum í nýju landi. Sjáum hvernig það fer. Þetta verður samt sem áður ekki bara dans á rósum, vinnandi kona. Þannig get ekki spókað mig á bikini alla daga og kaffihúsum að blogga þess á milli. Lífið er ekki alveg svo einfalt sem betur fer.


Allavega ætla að segja þetta gott í bili, byrja ekki að blogga á fullu strax fyrr en ég er kominn út. Set kannski e-r línur áður en ég fer, reikna með að það verði í byrjun desember. Þannig þetta fer að skella á ef allt gengur eftir þ.e.a.s.

Vona til Guðs að þetta heppnist - my dream come true !

Hafið það gott elskurnar!

Be in touch


Inga tha WINGA

 

Sumarið komið ????

19. apríl 2008 klukkan 20:17
Sælllllll

Ritstífla í gangi, ég er bara ekki með netið enn sem komið er þar sem ég bý. Þannig að já, lítið sem ég get gert í því. Ég er semsagt búsett á Hellu ennþá fyrir þá sem vilja vita, vinn þar hörðum höndum við að farga vesalings dýrunum. Verður e-r að gera það.. Satt að segja þá er þetta ekkert eins svakalegt eins og allir halda, bara smá blóð sviti og tár ! Ekkert mál fyrir Jón Pál !

Allavega, þá fór ég til NZ í mars sl. Það var alveg frábært, var þar í um það bil mánuð. Mögnuð ferð. Well, doldið langt ferðalag. Fór héðan til London, svo frá London til LA.. svo loks þaðan til NZ. Tók allt í allt um 2 sólarhrynga út að tímamismun á löndunum. En var svona 35 tíma samtals í flugvél. Á eftir að setja inn myndir frá þeirri ferð. Það var bóngóblíða alla daga, manni veitti svosem ekkert af því að komast af kuldanum sem ríkir hér á landi. En sem betur fer er lóan komin og farið að viðra betur. Thank God.
Ég hélt meðal annars upp á 21.afmælið mitt þar í landi með promp og prakt. Magnað... nánast á bikini-inu sko!

Svo er mín bara að flytjast til NZ i desember, eftir nærstu sláturverktíð. Þeir hafa boðið mér vinnu þarna í PPCS, sem er ein stærsta sláturhúsa keðja í heimi. Fór og skoðaði aðstæður, þetta er svona 100fallt stærra en ss á selfossi.. þannig já getið rétt ýmindað ykkur how big that is ! Fucking A broooo.. algjör snilld.

Þannig eina það sem ég þarf að gera er að vinna í work permitinu. Þá er það komið.

Þetta verður ágætt að komast aðeins í burtu og upplifa annan menningarheim ei ? Hélt það !

Hlakkar alveg óendanlega mikið til !! Tímin er svo fljótur að líða að ég verð kominn út áður en ég veit af.

En jæja.. Hafið það bara gott sæta fólk ! Við verðum í bandi.. getið alltaf náð í mig í sima þó!!


Gleðilegt sumar.. eða er það kannski of snemmt að segja það. Allavega 7,9,13..krossleggja fyngur fólk !! Svalur


Kossar og kram á ykkur

Love Love

Inga the Winnnnga !!

Saltkjöt og baunir... Túkall!!

05. febrúar 2008 klukkan 18:34
Gleðilegan sprengidag skurnar !

All
that you have is your soul ? Þetta söng hin frábæra söngkvendi Tracy Chapman.. held að það sé til mikið í þessu! Hef mikið verið að hlusta á hana undanfarið, frábær tónlistarmaður þar á ferð.


En já, að öðru... Allir að skamma mig fyrir að ég bloggi aldrei. Það eru nú ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi þá er ég ekki nettengd þar sem ég bý, á Hellu. Þannig e-ð aðeins erfitt fyrir mig að blogga. Að vísu er nettenging inn á skrifstofu en voða lítill tími þar sem maður fær bara klukkutíma í hádegismat! Svo verð ég nú að viðurkenna að ég gleymi því bara stundum að ég sé með þessa an**** bloggsíðu !

JÁ SÆLL..ljósin kveikt og enginn heima !! PFFFF

En allavega þá blogga ég ekkert þennan mánuð, gæti vel verið að ég skelli einni ferskri færslu inn beint í æð frá Nýja Sjálandi, jafnvel á meðan ég ligg í sólbaði!! HAHA..

Allavega ætla ekki að hafa þetta lengra núnaKoss

Hafið það gott elskurnar !!!

GOD BLESS


BLAHHHH !!!! Glottandi





Fæ flogg... erum við að tala um hunk eða ! Hann er bara gordjöss han Tim

Fyrir þá sem ekki vita þá leikur hann í Friday night lights ! Elska þessa þætti.. Maður ætlar aldrei að vaxa uppúr svona sápuóperum.. Love it !!

Marry Christmas elskurnar !!

24. desember 2007 klukkan 14:39

þá er komið að því, aðfangadagur gengin í garð. Ég er nú ekki alveg að átta mig á því að þetta sé bara gengið í garð en svo er víst raunin..Hlæjandi

Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í desember.. mikil vinna, en það þýðir svosem bara eitt, feitur seðill um mánaðarmótin.. vona ég. En fyrir þá sem ekki vita þá er ég að vinna á Hellu, í sláturhúsinu þar. Er bara í þessu að slátra, og líkar bara mjög vel. Enda væri maður kannski ekki að þessu ef þetta væri ekki eitthvað sem heillaði mann. Margir misskilja að maður hafi gaman af því að slátra dýrum, það er bara ekki þannig.. Get ekki lýst þessu. En svona soldill sveitabragur á þessu öllu saman. Ég hef allavega verið í þessu í 3ár ef ekki 4.. þannig já.. bráðum slást sláturhúsin á landinu um kjalllinn..naaahh kannski ekki alveg..Glottandi

Það er ekkert að frétta af Nýja Sjálandi ennþá. Ég hef samt sem áður tekið þá ákvörðun að fresta flutning mínum út þangað til eftir nærsta haust, gefa sér góðan tíma að undirbúa þetta allt saman. Enda er held ég ekki vit í öðru, hefði svosem alveg getað skellt mér núna.. en er kominn i góða vinnu hér heima, og verð þar þangað til nærsta haust..ágúst - sept eitthvað sollis..! Hins vegar er ég að spá í að kíkja út og kanna aðstæður sem og hitta vinina í apríl. Það verður bara fjör.. en það er svosem ekkert like 100%..Ullandi kemur allt saman í ljós. Ekkert að stressa mig á því.

En annars er bara allt gott að frétta af mér, gengur vel í vinnunni.. enda frábært fólk sem ég er að vinna með þannig get ekki verið annað en ánægð.

Ég vil nota tækifærði og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu.

Guð geymi ykkur esskurnar

Knús í krús..

Þangað til í nærsta stríði..

Inga Ó. Guðmundsdóttir Koss


 



 

Love and peace !!

Fucking A... Ó JÁ.. it's OVER!!!

11. nóvember 2007 klukkan 13:14
Góðan daginn skurnar..!! Þá held að þetta sé mín fyrsta færsla í mínu "come back-i" !! Það er bara gott mál. Seint koma sumir en koma þó, held að ég sé bara að átta mig á því að ég þarf ekki alltaf að skrifa ritgerðir í hvert skipti sem ég blogga. Nóg að gera bara fáar línur, bara það sem þér liggur á hjarta í raun og veru. Ég notaði þetta soldið mikið til þess einmitt að hreinsa hugan. Soldið magnað...Ullandi Ó JÁ!

Allavega undanfarna 3.mánuði hef ég unnið hjá SS, eins og undanfarin 3.haust. Þetta gekk allt eins og í sögu. Komu fólk allstaðar að úr heiminum til þess að hjálpa okkur þá má nefna nágranna okkar frá Svíþjóð, svo frá Póllandi og síðast en ekki síst frá Nýja Sjálandi. Og tókst okkur í sameigingu að slátra yfir 100.þúsund lömbum. Mjög góður árangur.

Ég var til húsa á Selfossi með Ný Sjálendingunum. Bjó þar ásamt 8. karlmönnum frá Nýja Sjálandi og honum Smára snilling með meiru..Sakna þeirra allra rosalega mikið. Gat ekki farið og kvatt þá um nóttina.. það var bara snítupappír og tár heima í stofu..!! Foreldrar hans lánuðu SS húsið sitt á Selfossi til að hýsa okkur yfir verktíð og vil bara nota tækifærið til að þakka fyrir það. Topp fólk. Held samt að þau séu e-ð lítið að vafra um á netinu, voða voða lítið. Glottandi

Að öðru... Nærsta skref í mínu lífi er að flytjast til Nýja Sjálands ef allt gengur eftir með vinnuleyfið. Þú getur verið þar í 3.mánuði án þess að vinna semsagt, án visa. En eins og ég þekki mig þá er það rosalega erfitt fyrir mig að sitja á rassgatinu í svona langan tíma og gera ekki neitt nema bora í nefið. Ó NEI. En þetta yndislega fólk sem ég kynntist, bæði núna og í fyrra, eins fyrir 3árum þau ætla öll að hjálpast að til að koma mér þangað. Alveg frábært fólk. Stórt klapp á það klárlega....!!! Svalur

Well well.. held að þetta sé komið gott í bili..

Ætla að skrifa smá á útlensku fyrir útlendingana ef þeir lesa þetta..

KIORA.. if some of u ppl..guys are reading this shit, than i just want to explain i was writing about im hopefully gonna come to New Zealand as soon is possible. And I was saying that im sorry about i coulnt come to say good bye before u went away. I was just at home and dry my fucking A tears. Miss u all so so so much..!! Cant imagine how good friends we are now, thats just awsome.. To much like we say...aiiiiight ROJ!! Well hope u have been enjoy this time in Iceland. Hard work, great party's and so on..!! Hope to hear from u guys, thanks for everythinh ! ..Hugs and kisses from here.. !! Horse dick ruleeeees!!!

CIAO CIAO..

KNÚS Í KRÚS KossKoss

Þangað til nærst...

- Inga -



Þetta er semsagt hongi, þýðir respect hjá maori fólkinu !! Mér finst þetta alveg frábært.. svo vinalegt að nota e-ð svona. E-ð sem við íslendingar þekkjum ekki..!! :)

KIORA!!

09. nóvember 2007 klukkan 20:26
Kvöldið.. JÆJA.. spá í að láta heyra svona af og til í mér hérna .. veitir ekkert af því ! Láta vita af sér og bulla aðeins í liðinu.. why not brotha..!!!

Allavega þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra núna.. bara svona viðvörun.. the war is on !!

Það liggur heldur ekkert vel við höggi að skrifa eins og mér líður akkúrat núna... Samt rétti tíminn.. láta allt gossa bara.. !!

En later á það bara..


CIAO CIAO !! Koss

Laugardagur til lukku!!

10. mars 2007 klukkan 12:51

Sæl elskurnar..!!
Var að vakna alveg eiturhress þrátt fyrir það að ég vaknaði e-n í morgun alveg að drepast úr kulda, lá við að ég var með grílukerti á nefinu. Frekar óþægilegt. Ég fór semsagt aðeins út í gær með Maríu og kó..aka kamarókrúið, það var ágætt. María var að keyra og ég edrú, óvenjuleg sjón. Neinei djók. Allavega þá fórum við á afmælistónleika Nilfisk. Þeir eru alveg mögnuð hljómsveit. Mér fanst líka svo gaman að sjá að þetta var haldið í þeirra heimabæ á Draugasetrinu. Ég hafði nú aldrei komið þangað fyrr, mjög kósý og skemmtilegur staður. Svona soldið spes.

Jæja sátum þarna góða stund og horfðum á strákana spila,kjöftuðum og auðvitað horfðum á fulla fólkið. Mér finst alltaf jafn gaman og findið að fara edrú á djammið, það var t.d. ein að tala ensku. Hún talaði svo hátt að þeir fyrir norðan heyrðu vel í henni.. íslendingar að tala ensku, drukknir.. frekar findið. Gaman af því. Það vill þannig til að svo kemur eldri maður til mín og spyr mig kvortað ég vilji ekki passa bjórana hans, og það var nú meira en sjálfsagt. Hefði nú örugglega drukkið þá ef ég hefði verið í glasi sjálf hehe. En jæja hann gat nú ekki skilið mig eftir með bjórana sína án þess að vera öruggur um að ég væri 100%, enda morð að spilla bjór. Hann spyr mig þarna nokkura laufléttra spurninga sem ég átti nú ekki í vandræðum með að svara. En ósköp normal spurn. Svo endaði hann með því að segja að ég væri alveg yndisleg og best en hann þyrfti nú að drífa sig þar sem hann þyrfti að pissa.. og versta var að hann þreif nærstum því á mér allt eyrað á meðan hann var að segja þetta við mig. Óbjóður. Allavega ég var nú fljót að hlaupa þegar hann var nú loksins farinn að pissa blessaður.

Skemmtilegt. Kvöldið var hvergi nærri búið. Við María fengum það verkefni að skutla tveimur ungum stúlkum á Eyrarbakka í party. Hressar stelpur. Anyway, við fórum þarna með þær og blöstuðum góðum tónum á leiðinni..hmm á kamaró ! Algjör snilld. Við urðum jú að kíkja inn í partyið.. og það vildi þannig til að strákur sem ég var að vinna með átti heima þar á bæ. Athyglisvert það. Það runnu á mig tvær grímur þegar inn var komið. Þar var alveg örugglega meðal aldurinn 13ára. Að sjá þessi stelpugrey, dansandi upp á borðum, í alltof litlum buxum og með maskaran niðrá maga. Ég bara hálf vorkenndi þeim, þar af auki alveg sauðdruknar. Ég kannaðist nú við e-a þarna inni, það voru að vísu e-r í eldri kanntinum þarna inni sem ég get nú ekki orða bundist og seigi hvað er að ? Hvað finst strákum fallegt við að sjá stelpur, eða vera með sem eru ekki einu sinni komnar með brjóst,pjölluhár og varla fermdar. Frekar sjúkt. Vera okkar þarna inni var ekki lengi í það skiptið þar sem nokkrir ónefnir aðilar gáfu okkur gæsabólur og kjánahroll þannig við hipjuðum okkur út. Well þetta er hvergi nærri búið.

Draugasetrið var nærsti viðkomustaður. Heppin. Fórum inn og fundum liðið. Þar var allt í fullu fjöri og við fundum Kalla. Svo voru strákarnir að fara niður að reykja, ég og maría fylgdum eftir og þar var einn ónefndur aðili í góðu stuðu. Það vill þannig til að hann ræður ekki við drykkju sína og lendir oftar en ekki í slagsmálum þegar hann fær sér í glas. Well hann kleip í rassinn á maríu, og Kalli Black varð alveg spinnigal og skirpti framan í manninn. Ég hljóp til að forða mér frá, þar sem ég var á pinnahælum tókst það ekkert alltof vel. Fékk bjórglas yfir bakið á mér og í kjól. Skemmtilegt það. Ætla að fara að koma þessari lykt á markað sem ilmvatni. Ekki svo slæmt. Neinei djók.. við strunsuðum í burtu á kamarónum.. á bakkan í partyið aftur. Þar var öllum hent út þar sem hættulegur maður var á ferð með hníf eða ostaskerara hehe, neinei djók. Svo endaði ég bara heima í mínu rúmi eftir deilur um að fara á Selfoss. Hélt nú ekki,alltaf best að sofa í sínu rúmi. Fór aðeins í tölvuna og steinsofnaði. Púnktur.

Þannig fór um sjóferð þá. Sagan er búið elskurnar og fenguð smjörþefinn af mínu föstudagskvöldi. Getið þar með lifað ykkur inn í það ef þið finnið þörf á slíku. Neinei djók.

Það er víst kominn laugardagur og veit ég ekki ennþá hvað skal gera í kvöld. Allir möguleikar opnir ennþá. Ég ætla að fara og fá mér morgunmat. Þannig hafið það bara gott á meðan..

Love Love long long time...:**

 

IM OUT

 

Ingan

Mars mánuður genginn í garð.. !! :)

01. mars 2007 klukkan 16:07

Komiði sæl kæru vinir nær sem fjær. Váá þetta var háfleigt hjá mér en jæja það er fimmtudagurinn 1.mars í dag sem þýðir það að ég verð tvítug eftir 18. daga. Merkilegt það. Loksins löglegur áfengis kaupandi hehe, þá verður sko farið í ríkið sjáið til. Bíð spennt.

Verð nú aðeins að minnast á veðrið, alveg gífurlega fallegt. Manni langar bara að hoppa í bikiní og út þegar maður lítur út um gluggan. En legg að vísu ekki í það þar sem það er heldur kalt. Það er líka svo magnað þegar sólin kemur þá fara allir í svo gott skap, hefur ótrúleg áhrif bara þetta litla. Helvíti magnað.

Helgin hjá mér er ekki ennþá ráðin, en ég ætlaði mér nú til Reykjavíkur og sýna þessu liði í heimana tvo og jafnvel hvar Davíð vinur minn keypti ölið. Ég er að vísu ekki búinn að redda gistingu enn sem komið er og vil auglýsa hér með ef ykkur langar að leyfa mér að gista yfir hlegina, endilega látið mig vita. Væri afar vel þegið annars held ég að það endi þá með hóteli, eða gistiheimili. En veit svosem ekki hvernig það gengi að gista bara hjá e-m.. kannski full gróft.

Kvöldið í kvöld er óráðið, ætli maður verði ekki heima í kósý fíling. Enda lítið annað að gera hérna. Maður fer kannski jafnvel út að hlaupa eða með hundana út ef veðrið verður ennþá svona gott.

Allavega ætla ekki að hafa þetta lengra í bili esskurnar. Bara svona að láta heyra í mér.

 

Over and Out

Ingan

     

Jááá... I miss you daddy! Fallegt!

22. febrúar 2007 klukkan 14:30

Helgin hjá mér var hin ágætasta, fékk mér aðeins í aðra tánna og betur en það á laugardeginum hérna á bakkanum. Það var ágætt, en ekki alveg það skemmtilegasta sem ég hef upplifað hingað til. En svona fór um sjóferð þá, kemur víst önnur helgi á eftir þessari. Klárt mál. Ég var samt búinn að lofa aðeins og miklu upp í lófan á mér, því ég var búinn að taka þá ákörðun um að slaka aðeins á í djamminu sem ég hef nú alveg gert en ekki eins mikið og ég ætlaði mér. Svona er þetta nú skemmtilegt.

Wellwell.. Ég var að tala við konu fyrrverandi vinnufélaga míns frá Nýja Sjálandi í gærkvöldi og vorum bara að spjalla um lífið og tilveruna. Ég nefndi það við hana hvað það væri gaman að koma þarna út og fara að vinna við slátrun þar líka. Held að málin standi þannig núna að maður gæti alveg verið á leiðinni þangað út ef allt gengur eftir, veit samt ekkert ennþá, en ég get fengið vinnu það er nokkuð öruggt. Erfitt að hafa samband við þau þar sem tímabeltið er ekki það sama þar og hér, einmitt bara dagur hjá þeim rétt í þessu. En þetta kemur allt saman í ljós. Ætla ekkert að ákveða neitt enn sem komið er og er með mín gömlu plön ennþá í gangi...eða plön og ekki plön, markmið réttara sagt kannski. Annars er bara ágætt á Íslandi og held nú að ég verði bara kyrr hér.

Tyrkland 2007 ? Já, við Rakel og kærasti hennar erum víst á leiðinni þangað 20.júlí nk og verðum þar í 28daga eða svo í bullandi hita með öl í einni og sólarolíu í hinni. Lífið er sko sannarlega ljúft. Við gengum frá þessu núna sl mánudag. Ég fór til Tyrklands í fyrra og það var svo gaman að ég verð bara að fara aftur og náði að draga þau með mér. Við verðum að vísu ekki á sama hóteli og ég var á, enda er það ekki sjálfgefið. Það var sko bara höll, manni leið eins og prinsessu en ég er bara þeirrar skoðunar að hótelið er ekki allt, maður er svo lítið inn á þessum hótelum, rétt hoppar í sturtu og sefur úr þér. Neinei segi það kannski ekki.. En við verðum á ágæti hóteli bara held ég, lýst allavega bara vel á þetta.

Síðast en ekki síst, þá ætla ég að enda þessa færslu með fallegu lagi sem ég fann, að vísu örugglega e-ð gamalt en mér er svosem alveg sama.. Fékk bara kökk í hálsin og tárin komu, er svo tilfynninganæm.. sjææææsa!

http://radioblogclub.com/open/19253/dj_sammy/%28Badboy%29%20-%20DJ%20Sammy%20-%20Heaven%20%289-11%20remix%29
 

Over and Out

 LoveLove and God bless ya...