Auglýsing

Könnun

Burt með ríkisstjórnina ?

- Heitt á fóninum -

Beyone - If i were a boy

Mase - Tell me what u want

Bob marley - Stir it up

Beyonce - Postcard

Tiki Taane - Allways on my mind

Fat freddys drop - wandering eye

Tracy Chapman - crossroads

The Roots - Dont say nuthin

Chris Brown - Oh baby

Og fleira... allt milli himins og jarðar.

Leit

Leikur dagsins

Laugardagur til lukku!!

10. mars 2007 klukkan 12:51

Sæl elskurnar..!!
Var að vakna alveg eiturhress þrátt fyrir það að ég vaknaði e-n í morgun alveg að drepast úr kulda, lá við að ég var með grílukerti á nefinu. Frekar óþægilegt. Ég fór semsagt aðeins út í gær með Maríu og kó..aka kamarókrúið, það var ágætt. María var að keyra og ég edrú, óvenjuleg sjón. Neinei djók. Allavega þá fórum við á afmælistónleika Nilfisk. Þeir eru alveg mögnuð hljómsveit. Mér fanst líka svo gaman að sjá að þetta var haldið í þeirra heimabæ á Draugasetrinu. Ég hafði nú aldrei komið þangað fyrr, mjög kósý og skemmtilegur staður. Svona soldið spes.

Jæja sátum þarna góða stund og horfðum á strákana spila,kjöftuðum og auðvitað horfðum á fulla fólkið. Mér finst alltaf jafn gaman og findið að fara edrú á djammið, það var t.d. ein að tala ensku. Hún talaði svo hátt að þeir fyrir norðan heyrðu vel í henni.. íslendingar að tala ensku, drukknir.. frekar findið. Gaman af því. Það vill þannig til að svo kemur eldri maður til mín og spyr mig kvortað ég vilji ekki passa bjórana hans, og það var nú meira en sjálfsagt. Hefði nú örugglega drukkið þá ef ég hefði verið í glasi sjálf hehe. En jæja hann gat nú ekki skilið mig eftir með bjórana sína án þess að vera öruggur um að ég væri 100%, enda morð að spilla bjór. Hann spyr mig þarna nokkura laufléttra spurninga sem ég átti nú ekki í vandræðum með að svara. En ósköp normal spurn. Svo endaði hann með því að segja að ég væri alveg yndisleg og best en hann þyrfti nú að drífa sig þar sem hann þyrfti að pissa.. og versta var að hann þreif nærstum því á mér allt eyrað á meðan hann var að segja þetta við mig. Óbjóður. Allavega ég var nú fljót að hlaupa þegar hann var nú loksins farinn að pissa blessaður.

Skemmtilegt. Kvöldið var hvergi nærri búið. Við María fengum það verkefni að skutla tveimur ungum stúlkum á Eyrarbakka í party. Hressar stelpur. Anyway, við fórum þarna með þær og blöstuðum góðum tónum á leiðinni..hmm á kamaró ! Algjör snilld. Við urðum jú að kíkja inn í partyið.. og það vildi þannig til að strákur sem ég var að vinna með átti heima þar á bæ. Athyglisvert það. Það runnu á mig tvær grímur þegar inn var komið. Þar var alveg örugglega meðal aldurinn 13ára. Að sjá þessi stelpugrey, dansandi upp á borðum, í alltof litlum buxum og með maskaran niðrá maga. Ég bara hálf vorkenndi þeim, þar af auki alveg sauðdruknar. Ég kannaðist nú við e-a þarna inni, það voru að vísu e-r í eldri kanntinum þarna inni sem ég get nú ekki orða bundist og seigi hvað er að ? Hvað finst strákum fallegt við að sjá stelpur, eða vera með sem eru ekki einu sinni komnar með brjóst,pjölluhár og varla fermdar. Frekar sjúkt. Vera okkar þarna inni var ekki lengi í það skiptið þar sem nokkrir ónefnir aðilar gáfu okkur gæsabólur og kjánahroll þannig við hipjuðum okkur út. Well þetta er hvergi nærri búið.

Draugasetrið var nærsti viðkomustaður. Heppin. Fórum inn og fundum liðið. Þar var allt í fullu fjöri og við fundum Kalla. Svo voru strákarnir að fara niður að reykja, ég og maría fylgdum eftir og þar var einn ónefndur aðili í góðu stuðu. Það vill þannig til að hann ræður ekki við drykkju sína og lendir oftar en ekki í slagsmálum þegar hann fær sér í glas. Well hann kleip í rassinn á maríu, og Kalli Black varð alveg spinnigal og skirpti framan í manninn. Ég hljóp til að forða mér frá, þar sem ég var á pinnahælum tókst það ekkert alltof vel. Fékk bjórglas yfir bakið á mér og í kjól. Skemmtilegt það. Ætla að fara að koma þessari lykt á markað sem ilmvatni. Ekki svo slæmt. Neinei djók.. við strunsuðum í burtu á kamarónum.. á bakkan í partyið aftur. Þar var öllum hent út þar sem hættulegur maður var á ferð með hníf eða ostaskerara hehe, neinei djók. Svo endaði ég bara heima í mínu rúmi eftir deilur um að fara á Selfoss. Hélt nú ekki,alltaf best að sofa í sínu rúmi. Fór aðeins í tölvuna og steinsofnaði. Púnktur.

Þannig fór um sjóferð þá. Sagan er búið elskurnar og fenguð smjörþefinn af mínu föstudagskvöldi. Getið þar með lifað ykkur inn í það ef þið finnið þörf á slíku. Neinei djók.

Það er víst kominn laugardagur og veit ég ekki ennþá hvað skal gera í kvöld. Allir möguleikar opnir ennþá. Ég ætla að fara og fá mér morgunmat. Þannig hafið það bara gott á meðan..

Love Love long long time...:**

 

IM OUT

 

Ingan

FUCKINNNNGGG snillllllldddar blogg hjá tér skvízzzaaa... djös magnaða kvöld.... allt að gerast bara! djöfull ertu góð í að koma svona tessu frá tér á bloggið! Nett Flott! en hvad segirru eigum við etti að detta í það í kvöld og skella okkur í magadans uppá boðum ;) NOOOOTTTT ;) luv u long time ;) :*
#1
10. mars 2007 klukkan 17:09
takk essskurar!! En já, snilldar kvöld að baki :)
#2
10. mars 2007 klukkan 21:23
hæhæ sæta bara kvitta ;)
#3
13. mars 2007 klukkan 14:39
ertu á lífi, ég er lélegur bloggari en kemst ekki með tærnar þar sem þú hefur hælana hvað það varðar... koma svooooo...
#4
04. maí 2007 klukkan 14:08

Skrifa athugasemd