Marry Christmas elskurnar !!
Já þá er komið að því, aðfangadagur gengin í garð. Ég er nú ekki alveg að átta mig á því að þetta sé bara gengið í garð en svo er víst raunin..
Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í desember.. mikil vinna, en það þýðir svosem bara eitt, feitur seðill um mánaðarmótin.. vona ég. En fyrir þá sem ekki vita þá er ég að vinna á Hellu, í sláturhúsinu þar. Er bara í þessu að slátra, og líkar bara mjög vel. Enda væri maður kannski ekki að þessu ef þetta væri ekki eitthvað sem heillaði mann. Margir misskilja að maður hafi gaman af því að slátra dýrum, það er bara ekki þannig.. Get ekki lýst þessu. En svona soldill sveitabragur á þessu öllu saman. Ég hef allavega verið í þessu í 3ár ef ekki 4.. þannig já.. bráðum slást sláturhúsin á landinu um kjalllinn..naaahh kannski ekki alveg..
Það er ekkert að frétta af Nýja Sjálandi ennþá. Ég hef samt sem áður tekið þá ákvörðun að fresta flutning mínum út þangað til eftir nærsta haust, gefa sér góðan tíma að undirbúa þetta allt saman. Enda er held ég ekki vit í öðru, hefði svosem alveg getað skellt mér núna.. en er kominn i góða vinnu hér heima, og verð þar þangað til nærsta haust..ágúst - sept eitthvað sollis..! Hins vegar er ég að spá í að kíkja út og kanna aðstæður sem og hitta vinina í apríl. Það verður bara fjör.. en það er svosem ekkert like 100%..
kemur allt saman í ljós. Ekkert að stressa mig á því.
En annars er bara allt gott að frétta af mér, gengur vel í vinnunni.. enda frábært fólk sem ég er að vinna með þannig get ekki verið annað en ánægð.
Ég vil nota tækifærði og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu.
Guð geymi ykkur esskurnar
Knús í krús..
Þangað til í nærsta stríði..
Inga Ó. Guðmundsdóttir 
![]()
Love and peace !!
