Auglýsing

Könnun

Burt með ríkisstjórnina ?

- Heitt á fóninum -

Beyone - If i were a boy

Mase - Tell me what u want

Bob marley - Stir it up

Beyonce - Postcard

Tiki Taane - Allways on my mind

Fat freddys drop - wandering eye

Tracy Chapman - crossroads

The Roots - Dont say nuthin

Chris Brown - Oh baby

Og fleira... allt milli himins og jarðar.

Leit

Leikur dagsins

Drulla upp á bak !

15. nóvember 2008 klukkan 16:48
Góðan daginn.. Þessi síða er búinn að vera rétt eins og ríkisstjórnin í landinu. Eigum lítið annað sameiginlegt en það. Ég er svo "Lost" að oft gleymi ég hreinlega að ég sé með bloggsíðu. Þá er mikið sagt, takk fyrir. Held að það séu samt sem áður ekki margir sem eru að skoða þetta hjá manni, en væru kannski duglegri að kíkja við ef maður væri að bulla og setja inn myndir og svona. 

Anyway

Ég hef verið að vinna undanfarið like maniac í orðsins fyrstu merkingu. 5 sláturverktíð mín að enda. Þetta var ágætis verktíð, þrátt fyrir að menn voru ekki sáttir við launin. En sem betur fer leystist það á enda og allir fóru þreyttir til síns heima á ný. Blóð sviti og tár, en þó aðllega blóð. Þar sem þetta er nú einu sinni sláturhús.

Nú fer að koma að því að ég fari svo af landi brott ef allt gengur eftir. Er búinn að vera að vinna í því að fá atvinnuleyfi á Nýja Sjálandi, kominn með pappírana í hendur eftir mikið puð. Þá kemur í ljós að ég geti ekki sótt um fyrr en ég kem til Nýja Sjálands, því við erum ekki eitt af þessum þriðja ríkis löndum. Veit svosem ekki hvernig staðan er á því í dag, eftir að Ísland fór á hausinn. En held að það sé óbreytt staða. Fæ lokasvar um vinnu í nærstu viku þá fer þetta alltsaman að skírast. Keep my fingers crossed. Það er semsagt eins og ég hef minnst á hérna áður eitt af stærstu sláturhúsum í heimi og verður mikil viðurkenning fyrir mig að fá að upplifa það að vinna fyrir þá og sanna mig.  
Markmið mitt með því að byrja að skrifa hér að nýju er einmitt sá að fólkið heima getur haft þann kost að fylgjast með mér á nýjum slóðum í nýju landi. Sjáum hvernig það fer. Þetta verður samt sem áður ekki bara dans á rósum, vinnandi kona. Þannig get ekki spókað mig á bikini alla daga og kaffihúsum að blogga þess á milli. Lífið er ekki alveg svo einfalt sem betur fer.


Allavega ætla að segja þetta gott í bili, byrja ekki að blogga á fullu strax fyrr en ég er kominn út. Set kannski e-r línur áður en ég fer, reikna með að það verði í byrjun desember. Þannig þetta fer að skella á ef allt gengur eftir þ.e.a.s.

Vona til Guðs að þetta heppnist - my dream come true !

Hafið það gott elskurnar!

Be in touch


Inga tha WINGA

 
Sælar !! hvað er að gerast... þú bara bloggar :) vonandi gengur þetta allt eftir og það er svo í lagi að láta heyra í sér annað slagið ;) þó það væri ekki nema meil... ég bið að heilsa genginu, luv.Sif
#1
15. nóvember 2008 klukkan 23:46
 
Ingan
Segðu ! Undur og stórmerki, vægt til orða tekið. Verð að játa það að ég er bara allsekki nógu dugleg við þetta.

Knústu alla frá mér skan

Geri mitt besta í blogginu..

Kisses Inga Ó.
#2
17. nóvember 2008 klukkan 20:59

Skrifa athugasemd