Auglýsing

Könnun

Burt með ríkisstjórnina ?

- Heitt á fóninum -

Beyone - If i were a boy

Mase - Tell me what u want

Bob marley - Stir it up

Beyonce - Postcard

Tiki Taane - Allways on my mind

Fat freddys drop - wandering eye

Tracy Chapman - crossroads

The Roots - Dont say nuthin

Chris Brown - Oh baby

Og fleira... allt milli himins og jarðar.

Leit

Leikur dagsins

Komið að því..

21. nóvember 2008 klukkan 14:38
Ætla að henda inn smá bloggi þennan ágæta föstudag. Aðalega til að grobba mig af því að ég hef semsagt fengið þau gleðitíðindi að ég fékk vinnu í Nýja Sjálandi og fer af landi brott í byrjun des. Er samt ekki kominn með atvinnuleyfi sem stendur, geng frá því úti. Þarf að fá undirskrift hjá fyrirtækinu og svoddan. Þetta er algjört hell að sækja um þetta, er t.d. að fara í læknisskoðun á mánudaginn og kosnaðurinn við hana er 20.000 kr isl. Klikkun!! Þá sérstaklega í þessu kreppu ástandi, en þíðir svoesm ekki að væla yfir því.
Hef ekki ákveð hversu lengi ég verð, en reikna fastlega með hálfu ári ef ekki lengur. Allavega ekki styttra en það. Hlakka til að fara sem og kvíði fyrir, langt ferðalag. Svo á ég eftir að sakna fjölskyldu, vina og kunningja og íslands í heild sinni þrátt fyrir að við séum að standa í kreppu. Stolt að vera íslendingur og mun alltaf vera.
FULL trú á að þetta leysis á einhverja vegu, getur ekki annað verið. Mestu máli skiptir að standa saman á þessum erfiðu tímum. 
öðru..helginni ? Hvað á maður að gera af sér, seinasta helgi var ekki upp á marga fiskana hjá mér. Fór varla út úr húsi. Bara heima að dúllast e-ð, en það er nauðsynlegt líka. En væri til í að gera e-ð þessa helgi, njóta þessara seinustu daga á Íslandi.. í bili. 
Ég ætla að taka með mér myndavél út núna, klikkaði alveg á því seinast. En Linda, stelpa sem var með mér úti þá tók myndir á bara alltaf eftir að fá þær hjá henni. 
En nuna ætla ég að taka alveg fullt af myndum handa ykkur heima á íslandi.. lofa því!
ANYWAY.. komið gott. Held samt að Sif frænka sé eina sem skoðar þessa síðu af einhverju leyti. Takk fyrir það Sif mín, gott að vita af e-m..
Hafið það gott um helgina gott fólk!
Luv And Kisses
Inga Ó. Guðmunds 

Skrifa athugasemd